Vetraræfingar 2021-2022

Vetraræfingar 2021-2022
1.september 2021 – 22.maí 2022
(æfingar eru í Hliðaskóla í Reykjavík og Tennishöllin í Kópavogur)
s.820-0825
hmr@hmr.is

HMR Tennis
Markmið okkar er að tryggja öllum vandaða kennslu í skemmtilegu umhverfi með áherslu á framfarir hvers nemenda fyrir sig. Tennisþjálfarar eru Raj K. Bonifacius, sem hefur þjálfað landsliðið í 24 ár og er með hæstu þjálfararéttindi frá Alþjóða Tennissambandsins (ITF Level 3) & Professional Tennis Registry (Professional) & Rafn Kumar Bonifacius, sem hefur tíu ára reynslu sem þjálfari með tennisþjálfara réttindi frá Tennissambandi Íslands og núverandi Íslandsmeistari í meistaraflokk karla 2021

Æfingar
Æfingarnar eru haldnar á tveimur stöðum – íþróttahús Hliðaskóla í Reykjavík (Hamrahlið 2, 105 Reykjavík) og Tennishöllinni í Kópavogi (Dalsmári 13, 201 Kópavogur). Tennisskólinn skaffar spaðar & bolta en það sem þarf að eiga eru innanhúss íþróttaskór og leikfimisföt. Æfingar eru opnar fyrir alla. Æfingatímar eru frá kl.16-20 í Íþróttahús Hlíðaskóla í Reykjavík á Mánudögum og Fimmtudögum og frá kl.15.30-18.30 á Þriðjudögum, Miðvikudögum, Föstudögum og frá kl.10.30-12.30 á Sunnudögum í Kópavogi.

Kostnaður
Æfinga- og greiðlsutímabil eru tveimur, frá 1.september til 19.desember 2021 og 8.janúar-22.maí 2022. Hægt er að velja um fjölda æfingatíma og miðast upphæð æfingagjalda við fjölda klukkutímar og innifalið er Wilson tennisspaði, Wilson tennisbol og 3 boltar –

Smella hér til að fara inná skráningasiðu – http://tennis.is/tennisskoli-reykjavikur-haust-2021/